Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forseti og forsetafrú, sóttu á dögunum minningarathöfn úti fyrir strendur landsins með Alberti II fursta af Mónakó og Charlene prinsessu. Tilefnið var að í haust verða 90 ár liðin frá einu sögufrægasta sjóslysi við Íslandsstrendur á síðustu öld, þegar 40 skipverjar franska leiðangursskipsins Pourquoi-Pas ? fórust við Álftanes á Mýrum.
Ólafur Ragnar segir að á Íslandi hafi atburðarins fyrst og fremst verið minnst sem skelfilegs og mannskæðs sjóslyss en að hann hafi sömuleiðis sett mikið mark á vísindasögu Evrópu.
Leiðangursstjórinn Jean-Baptiste Charcot var nefnilega af mörgum talinn einn merkasti vísindamaður síns tíma og var hann meðal þeirra sem lögðu grunn að heimskautarannsóknum nútímans.
Auk Ólafs flutti langafabarn Charcots, Anne Manipoud Charcot, ávarp við athöfnina sem hann segir að hafi verið áhrifarík. „Í reynd var þetta mjög áhrifarík athöfn og sýndi hve sterkur þessi atburður er í bæði sögu Frakklands, sögu heimskautarannsókna og svo auðvitað í sögu okkar Íslendinga,“ segir Ólafur Ragnar.
Nánar má lesa um málið á síðu 10 í Morgunblaðinu.