Í þáttunum, sem verða aðgengilegir hérlendis í lok ágúst á Sjónvarp Símans Premium, leikur Jamie Dornan mann sem vaknar á sjúkrahúsi í áströlsku óbyggðunum eftir harkalegt bílslys.
Hann man hvorki hver hann er né hvernig hann endaði þar. Þegar hann reynir að púsla saman fortíð sinni kemur fljótt í ljós að einhverjir vilja síður en svo að hann finni svörin.
Ólafur Darri leikur Billy Nixon, dularfullan og ógnvænlegan mann sem kemur til Ástralíu í leit að aðalpersónunni. Billy er ekki maður sem auðvelt er að hrista af sér og nærvera hans setur svip sinn á atburðarás þáttanna.
Hann hefur áður farið með hlutverk í stórum erlendum verkefnum svo sem The Secret Life of Walter Mitty, Severence, Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald og The Meg svo fáein dæmu séu nefnd.
Með önnur stór hlutverk fara Danielle Macdonald, Shalom Brune-Franklin, Damon Herriman og Alex Dimitriades. Höfundar þáttanna eru bræðurnir Harry og Jack Williams, sem einnig stóðu að baki þáttum á borð við The Missing og Baptiste.
Hér fyrir neðan má sjá hluta af viðtalinu.