Á Dalvík var K-listinn aðeins þremur atkvæðum frá hreinum meirihluta. Undanfarin fjögur ár hefur hann starfað með Sjálfstæðisflokknum í meirihluta í bænum. Meirihlutinn hélt velli í kosningunum og gætu þessir tveir flokkar myndað meirihluta sem samanstendur af fimm fulltrúum af þeim sjö sem sitja í sveitarstjórn.
Oddviti K-listans, Helgi Einarsson, staðfesti við fréttastofu að þeir væru í óformlegum viðræðum við Framsókn um nýtt meirihlutasamstarf. Staða K-listans í sveitarfélaginu er sterk og þeir geta myndað meirihluta með öllum hinum þremur flokkunum sem náðu inn manni.
Tekin var lýðræðisleg ákvörðun innan K-listans að breyta til og ræða við aðra en Sjálfstæðismenn, segir Helgi.
„Okkur er bara sendur puttinn“
Benedikt Snær Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Dalvík, segir ákvörðunina gríðarleg vonbrigði.
Samstarfið hafi verið bæði gott og árangursríkt á síðasta kjörtímabili og að ákvörðun K-listans hafi komið aftan að þeim:
„Þetta eru vissulega vonbrigði. Okkur er bara sendur puttinn,“ segir Benedikt. Hann hafi reynt að ná á oddvita K-listans um leið og fyrstu tölur birtust en hann hafi ekki svarað.
Í kjölfarið hafi þeim verið tilkynnt daginn eftir að K-listinn myndi byrja á því að ræða við Framsóknarflokkinn um nýtt meirihlutasamstarf.
Sjálfstæðismenn líka úti í kuldanum í Fjallabyggð
Í Fjallabyggð hélt meirihluti S-lista Jafnaðarmanna og Sjálfstæðisflokks velli, og rúmlega það. Sjálfstæðismenn bættu við sig manni og eru stærsti flokkur sveitarfélagsins.
Hins vegar eru formlegar viðræður hafnar milli Jafnaðarmanna og H-listans, sem bæði fengu tvo menn kjörna. Helgi Jóhannsson, oddviti H-listans í Fjallabyggð, segir að viðræður séu vel á veg komnar og frétta að vænta fljótlega af nýju meirihlutasamstarfi. Málefnagrundvöllur H-lista og Jafnaðarmanna sé góður og helsta ástæðan fyrir nýju meirihlutasamstarfi.
Jóhann K. Jóhannsson, oddviti Jafnaðarmanna, segir að þeir hafi kannað baklandið sitt á kosninganótt og vilji flokksins hafi verið að leita til H-listans og það sé staðan.
Ekki náðist í Sjálfstæðismenn í Fjallabyggð við vinnslu fréttarinnar.