„Það var brotist inn á heimili okkar á meðan við vorum burtu í nokkra daga. Aðkoman var vægast sagt óhugguleg,“ segir kona sem býr með fjölskyldu sinni á sunnanverðu Kársnesi. Innbrotið bíræfið og ásetningurinn mjög einbeittur: „Þetta var ekki neitt andvaraleysi af okkar hálfu, það var allt læst og krækjur á öllum gluggum. En þeir brutust inn með því að þvinga upp einn gluggann.“
Óhugguleg aðkoma eftir innbrot á heimili fjölskyldu á Kársnesi – Finnur fyrir mikilli samstöðu meðal íbúa