Oddvitarnir í borginni tókust á

Oddvitarnir í borginni tókust á

Oddvitarnir í borginni tókust á

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, stóð sig best í kappræðum kvöldsins á RÚV að mati áhorfenda, sem greiddu atkvæði með smáforritinu RÚV-stjörnur. Hildur fékk 22,5% atkvæða og var með töluvert forskot á næstu oddvita.

Björg Magnúsdóttir úr Viðreisn fékk tæp 13% atkvæða og þau Ari Edwald, Einar Þorsteinsson, Pétur Marteinsson og Silja Sóley Birgisdóttir fylgdu í kjölfarið með 11-12%. 

Atkvæðin í þessum samkvæmisleik voru þannig nokkuð dreifð og skeikaði aðeins örfáum prósentubrotum á röð frambjóðenda. 

Að lokum fengu allir oddvitarnir 30 sekúndur til að ávarpa kjósendur. Við ljúkum þessari fréttavakt á lokaávörpum oddvitanna. Takk fyrir okkur.

Oddvitar flokkanna voru spurðir að því hver þeirra draumameirihluti væri í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst með mest fylgi í kosningakönnunum síðustu vikur. Hildur Björnsdóttir oddviti flokksins segist ekki ætla að upplýsa um einkasamtöl en að þó lítist Sjálfstæðisflokknum best á samstarf við Framsókn, Viðreisn eða Miðflokkinn.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, óttast meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, draumameirihluti Samfylkingarinnar væri ekki með Sjálfstæðisflokki né Miðflokki. Pétur segir flokkinn líklegri til þess að horfa nær miðju- og vinstrivængnum.

Ari segir ljóst að lengst sé á milli Miðflokks og Samfylkingarinnar, honum hafi litist ágætlega á samstarf með Sjálfstæðisflokki, Framsókn og Viðreisn en að gagnrýni Einars Þorsteinssonar oddvita Framsóknar í garð Miðflokksins hafi komið honum á óvart.

Sanna Magdalena, oddviti Vinstrisins, segir ljóst að flokkurinn vilji ekki hægri stjórn í Reykjavík. Vinstrið sé til dæmis opið fyrir samstarfi við Sósíalista en að ljóst sé að samstarf við ákveðna flokka gangi ekki upp, Vinstrið tali fyrir mannréttindum og að sumir flokkar styðji ekki þá sýn.

Útilokar allt samstarf við Miðflokk

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að pólitískur ómöguleiki sé á samstarfi milli Miðflokks og Viðreisnar, í raun hafni flokkurinn öllu samstarfi við Miðflokkinn.

Björg segir að góður möguleiki sé á samstarfi við Sjálfstæðisflokk, Framsókn og Pírata, hins vegar sé Samfylkingin öllu síðri kostur.

Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, hefur alfarið útilokað samstarf við Samfylkinguna, ljóst sé að borgin þurfi nýtt upphaf. Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn eru þeir flokkar sem Einar myndi helst vilja mynda meirihluta með.

Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, útilokar alfarið samstarf við Miðflokkinn og Okkar Borg líkt og oddviti Sósíalista, Silja Sóley Birgisdóttir. Sósíalistar segjast vilja vinna með Vinstrinu, Pírötum og Samfylkingunni.

Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir flokkinn til í að vinna með öllum þeim flokkum sem hafa velferðarmál að leiðarljósi. Hann útilokar ekki samstarf við neina flokka.

Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar, segir flokkinn hafa stórt hjarta, það sé þó ekki nægilega stórt til þess að vinna með „ákveðnum vinstri aðilum“. Flokkurinn sé klárlega til í að vinna með hægri flokki.

Oddviti Góðan daginn framboðsins, Ingimar Þór Friðriksson, útilokar ekki samstarf við neina flokka. Hann segir flokkinn hvorki vera til hægri né vinstri en að æskilegast sé að breytingar verði í borginni.

Hér kemur svo seinni lotan af spurningum oddvitanna hvorir til annars:

Sigfús spurði Hildi: hvað ætlarðu að gera í Græna gímaldinu?

Guðmundur Ingi spurði Hildi: ef til samstarfs kæmi við Flokk fólksins mynduð þið styðja kröfur okkar um að útrýma biðlistum eftir hjúkrunarrýmum, byggja fleiri þjónustuíbúðir og tryggja öllum 67 ára og eldri gjaldfrí bílastæði?

Einar spurði Hildi: af hverju þorir þú ekki að útiloka Samfylkinguna?

Björg spurði Einar: heldur þú að Reykvíkingar taki meirihluta Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks fagnandi?

Sanna spurði Hildi: af hverju eiga rökin um að markaðurinn geti reki innviði betur ekki við um Orkuveituna, en eiga við um Landsnet, Rarik og Ljósleiðarinn, á hvaða sameiginlega grunni ákveður flokkurinn hvaða innviði á að selja?

Hildur spurði Björgu: hvort telur þú eftir kosningar að þið getið náð meiri árangri með ykkar mál í samstarfi við Sjálfsæðisflokknum eða Samfylkinguna?

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar notaði sína spurningu til að spyrja Einar Þorsteinsson oddvita Framsóknar hvort hann teldi að borgarbúum myndi hugnast meirihluti Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, sem er einn af þeim möguleikum sem teiknuðust upp eftir niðurstöður fylgiskönnunar Gallups sem birt var í dag.

Einar sagðist miklu frekar myndu vilja meirihluta með Björgu og Hildi, oddvita Sjálfsæðisflokksins.

Hann sagði Ara ágætan en að hann væri með erfitt pólitískt bakland sem hefði lofað að taka róttækar ákvarðanir um samgöngusáttmálann og væri í bullandi vandræðum með hinseginmál og talaði inn í óttann í samfélaginu.

Reykjavíkurleiðin, lögfesting réttar til leikskóla, fyrirtækjaleikskólar og heimgreiðslur til foreldra voru meðal þess sem tekist var á um í umræðu um leikskólamál í kappræðunum. Flest voru sammála um að Reykjavíkurleiðin hafi verið skref í rétta átt og mörg voru sammála um að bæta þyrfti starfsaðstæður og kjör á leikskólum.

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði að borgin ætti ekki að neita sér um neinar lausnir í þessum flókna málaflokki því eflaust hentuðu allar lausnirnar einhverjum.

Silja Sóley, oddviti Sósíalistaflokksins, sagði einu raunhæfu lausnina að lengja fæðingarorlofið og það þyrfti að setja þrýsting á það. Í leikskólanum þyrfti að leggja áherslu á hækkuð laun starfsfólks.

Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar, tók undir þetta að það þyrfti að hækka laun leikskólastarfsfólks frekar en að verja fjármunum í dýra uppbyggingu eins og Brákarborg.

„Við verðum að borga þessu fólki mannsæmandi laun svo það komi aftur í vinnuna,“ sagði Sigfús. Hann sagði heimgreiðslurnar stórhættulegar og myndu bitna á þeim sem minnst mættu sín.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, segir að þrátt fyrir að flokkurinn hafi verið í meirihluta í borginni hafi hann fundið fyrir því að ekki væri nægur vilji, svo sem hjá Samfylkingunni, til að takast á við rót vandans.

Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðan daginn framboðsins, sagði augljóst að leikskólamál væru ekki forgangsmál nema rétt fyrir kosningar.

„Ef þetta væri forgangsmál þá væri þetta leyst.“

Horfðu á alla umræðuna um leikskóla í spilaranum að neðan.

Í einum lið kappræðnanna fá oddvitarnir að spyrja hvern annan spurninga. Hver oddviti má spyrja einn annan oddvita einnar spurningar. Fimm oddvitar fengu að spyrja í fyrri umferðinni og þrír þeirra beindu spurningum sínum að Hildi, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Sjáið spurningar og svör í spilurunum hér að neðan.

Ingimar hjá Góðan daginn spurði Kristinn hjá Pírötum: Hvernig stendur á að þið eruð ekki með opið bókhald á framboðinu og hvernig stendur á því að þið lokuðuð öllum íbúaráðum hverfanna í fyrra?

Kristinn spurði Hildi: Sjálfstæðismenn í minnihlutanum, þrjár óvinsælar ákvarðanir sem Sjálfstæðisflokkurinn myndi taka?

Silja Sóley spurð Hildi: útvistun starfa, hvernig ætla þau að tryggja að starfsfólk sem sinnir grunnþjónustu nái endum saman?

Ari spurðir Hildi: getum við treyst því ef við náum að mynda meirihluta að Sjálfstæðisflokkurinn komi með Miðflokknum í þær breytingar sem þarf að gera?

Pétur spurði Ara: hvernig hann vilji taka utan um börn í grunnskólum með annað tungumál en íslensku sem móðurmál?

Hraðaspurning: Ef þú mættir ráða af hverjum myndirðu láta reisa styttu í miðborginni?

Einar: Kennarinn

Björg: Guðrúnu Helgadóttur barnabókahöfundi

Sanna: Stytta til heiðurs láglaunakvenna

Hildur: Hallgerður Fróðadóttir landnámskona

Pétur: Vigdís Finnbogadóttir

Ari: Séra Friðrik

Silja: Venus

Kristinn: Móðir hans

Ingimar: Selur

Sigfús: Séra Friðrik

Guðmundur Ingi: Inga Sæland

Húsnæðis- og skipulagsmál hafa verið borgarbúum ofarlega í huga fyrir komandi kosningar.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, segist hlynntur þéttingarstefnu byggðar í Reykjavík en segir að þó hafi margt betur mátt fara. Pétur telur að skilgreina þurfi þéttingarstefnuna betur, margt hafi verið vel gert en að hlusta þurfi á íbúa betur en áður hefur verið gert.

Silja Sóley Birgisdóttir oddviti Sósíalistaflokksins segir að þéttingarstefnan sé að mörgu leyti vanhugsuð, til að mynda stemmi ekki uppbygging hverfa og skóla innan þeirra. Sósíalistar hafa lagt til að Reykjavíkurborg stofni sitt eigið byggingarfélag og þar með geti sveitarfélagið sjálft séð um uppbyggingu íbúða, þannig geti borgin stigið beint inn í ferlið.

Kristinn, oddviti Pírata í borginni, telur mikilvægt að flokkurinn hlusti betur á íbúa og að koma þurfi á borgarhönnunarstefnu sem tekur tillit til hljóðvistar og birtu í hverfum, áhersla sé lögð á gæði og að lykilgrunnurinn sé að vera í samtali og tryggja hönnun og gæði.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir flokkinn hafa áhyggjur af unga fólkinu, það kjósi með fótunum og fari í önnur sveitarfélög. Þá skipti miklu máli að íbúar fái að ráða sjálfir hvernig þeir vilji búa.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi sömuleiðis fyrirhugaða uppbyggingu í Keldnalandi og sagði Sjálfstæðismenn vera ósátta við núverandi fyrirkomulag.

Eins og við var að búast sköpuðust líflegar umræður um samgöngusáttmálann og borgarlínu í kappræðunum.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði Sjálfstæðisflokkinn í borginni aldrei hafa haft aðkomu að hluta borgarinnar í samgöngusáttmálanum þó flokkurinn sé í meirihluta í öllum hinum sveitarfélögunum sem standa að sáttmálanum, og hann hafi verið í ríkisstjórn þegar hann var undirritaður. Hún sagðist ósátt við að borgarlínan hafi fengið allan forgang.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, sagði samgöngusáttmálann góðan en það væri áhyggjuefni að framboðin væru á öndverðum meiði um hann: annars vegar vildu þeir setja algjört stopp á borgarlínu, eða vildu ekki hlusta á neina gagnrýni. Hann sagði að það yrði að bregðast við gagnrýni og breyta útfærslu borgarlínunnar.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði að ekkert myndi gerast í samgöngumálum ef samgöngusáttmálinn yrði rifinn upp á tveggja ára fresti eftir hverjar Alþingis- og sveitarstjórnarkosningar. Hann sagði óábyrgt að skipta um hest úti í miðri á.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, tók undir þetta og sagði Reykvíkinga ekki geta beðið lengur. Hún benti á að samgöngubætur eins og Hvalfjarðargöngin hefðu mætt mjög mikilli andstöðu, allt að 70%, þar til þau voru komin í gagnið og farin að virka.

Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, tók undir með Björgu og sagði að sýna þyrfti ábyrgð og keyra málið áfram. Hún sagði flokkinn hins vegar algerlega á móti allri gjaldtöku en að borgarstjórn þyrfti að treysta þinginu til að finna leiðir til að fjármagna verkefnið.

Horfið á alla umræðuna um samgöngumál hér að neðan.

Frambjóðendur voru beðnir um að svara hvaða borg Reykjavík ætti að taka sér til fyrirmyndar. Svona svöruðu oddvitar flokkanna:

Sigfús Aðalsteinsson: Vancouver

Guðmundur Ingi Þóroddsson: Osló

Einar Þorsteinsson: Reykjavík á að vera Reykjavík

Sanna Magdalena Mörtudóttir: Vínarborg

Björg Magnúsdóttir: Kaupmannahöfn

Hildur Björnsdóttir: Ósló

Pétur Marteinsson: Stokkhólmur

Ari Edwald: Reykjavík á að vera Reykjavík

Silja Sóley Birgisdóttir: Vínarborg og Helsinki

Kristinn Jón Ólafsson: Oulu í Finnlandi

Ingimar Þór Friðriksson: Uppsalir

Oddvitakappræðurnar hófust á umræðu um traust og hvernig mætti vinna traust borgarbúa á borgarstjórn aftur, en traust til borgarstjórnar mælist almennt lágt.

Oddvitarnir voru flestir sammála um að bæta þyrfti tengsl borgarstjórnar við borgarbúa því þar hefði orðið ákveðið rof.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar sem hefur verið í meirihluta í borginni í áraraðir, sagði að borgin glímdi við vaxtaverki og kerfin næðu ekki að fylgja eftir fólksfjölgun og uppbyggingu sem hann sagði auka líkur á mistökum eins og Græna gímaldinu, sem sýndi rof milli borgarbúa og borgarstjórnar.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sagði framboðið svara ákalli íbúa um að vinstrimenn sýndu samstöðu og einblýndu á það sem skipti mestu máli. Þá þakkaði hún borgarbúum traustið til sín.

Í umræðum um traust var Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, spurður út í umdeildar skoðanir flokksmanna hans á regnbogafánanum og umdeildan gest sem ungliðahreyfingin fékk til að ávarpa samkomu. Hann sagði flokkinn ekki bera ábyrgð á skoðunum eins manns og að það hefði orðið útúrsnúningur á orðræðunni.

Hægt er að horfa á alla umræðuna um traust í spilaranum hér að neðan.

Sjálfstæðisflokkurinn er með mest fylgi flokka í Reykjavík samkvæmt lokakönnun Gallups. Flokkurinn mælist með 31,3% fylgi.

Þau sem horfa á oddvitakappræðurnar á RÚV geta valið þá sem standa sig best í RÚV-stjörnur appinu. Sigurvegarar í RÚV-stjörnukeppninni fyrir síðustu alþingiskosningar mynduðu ríkisstjórn.

Nánari upplýsingar í fréttinni hér að neðan.

Samfélagsmiðlateymið okkar ætlar að fylgjast með oddvitaumræðunum. Þau Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Sebastian Óli Guðmundsson eru mætt að ræða við oddvitana, eins og sjá má á þessum ljósmyndum sem Ragnar Visage tók.

Fréttastofa RÚV er Instagram og Tiktok undir notandanafninu @ruvfrettir.

Þau sem ekki hafa ákveðið hvar þeir ætla að setja x-ið í kjörklefum borgarinnar á morgun verða vonandi einhverju nær eftir kappræður kvöldsins.

Kjósendur í öllum sveitarfélögum geta líka tekið kosningapróf RÚV til að máta sig við framboðin.

Oddvitar framboðanna í Reykjavík hafa staðið í ströngu þessa vikuna. Kappræðurnar í kvöld eru þær fjórðu sem oddvitar stærstu framboðanna taka hafa tekið þátt í síðan á þriðjudag.

Þá mættust oddvitar allra ellefu framboða í kappræðum hjá Heimildinni. Á miðvikudag mættust oddvitar efstu níu framboða í kappræðum hjá Sýn og í dag tókust oddvitar sex efstu framboðanna í kappræðum hjá mbl.is.

Gott kvöld. Það líður að oddvitakappræðum fyrir borgarstjórnarkosningar á morgun. Undirbúningur er í fullum gangi og fyrstu oddvitar mættir í smink.

#borginni #oddvitarnir #tókust


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-15-oddvitarnir-i-borginni-tokust-a-475189

📰 Aðrar fréttir

Fire damages estate agency in Playa Blanca’s busy tourist area
📅 30.09.2026 👁️ 0
Fire damages estate agency in Playa Blanca’s busy tourist area
Firefighters were called to a fire at an estate agency in the popular Lanzarote resort of Playa Blanca after flames broke out shortly after midnight o...
New York Times valdi 100 bestu sjónvarpsþætti aldarinnar – „Þetta hlýtur að vera reiðibeita“
📅 30.09.2026 👁️ 0
New York Times valdi 100 bestu sjónvarpsþætti aldarinnar – „Þetta hlýtur að vera reiðibeita“
Breaking Bad trónir á toppnum yfir bestu sjónvarpsþætti 21. aldarinnar samkvæmt nýjum lista bandaríska stórblaðsins New York Times.Blaðið tók saman 10...
Stað­ráðnar í að koma sterkari til baka - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Stað­ráðnar í að koma sterkari til baka - Vísir
Eva Katrín Baldursdóttir og Steinunn Hrólfsdóttir reka saman Andrá og hafa báðar starfað í fata- og tískugeiranum í fjölda ára. Þær voru nýbúnar að ta...
Þetta eru öldungadeildarsætin sem gætu ráðið úrslitum fyrir lokasprett Trumps á forsetastóli
📅 30.09.2026 👁️ 0
Þetta eru öldungadeildarsætin sem gætu ráðið úrslitum fyrir lokasprett Trumps á forsetastóli
Bandaríkjamenn ganga senn að kjörborðinu og kjósa til þings. Hinn 3. nóvember eru öll 435 sætin í fulltrúadeildinni í húfi og 35 sæti af hundrað í öld...
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Að þora að standa í lappir
📅 30.09.2026 👁️ 0
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Að þora að standa í lappir
Mynd Það er ekki öllum stjórnmálamönnum gefið að standa í lappirnar þegar á reynir.
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
📅 30.09.2026 👁️ 0
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary For­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Birg­ir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­mað...
Sjónvarp í 60 ár: Svona var fyrsti fréttatíminn
📅 30.09.2026 👁️ 0
Sjónvarp í 60 ár: Svona var fyrsti fréttatíminn
Á þessum degi árið 1966 var fyrsti sjónvarpsfréttatíminn sendur út, daginn sem Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Hann var frábrugðinn fréttatíma...
WEDNESDAY WEATHER: More cloud but temperatures still approach 30°C across the Canaries
📅 30.09.2026 👁️ 0
WEDNESDAY WEATHER: More cloud but temperatures still approach 30°C across the Canaries
Cloudier skies are forecast across parts of the Canary Islands for today, Wednesday, although temperatures will remain warm and could still approach 3...
Einelti meðal barna í 4. og 5. bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent
📅 30.09.2026 👁️ 0
Einelti meðal barna í 4. og 5. bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent
Einelti meðal barna í fjórða og fimmta bekk á Suðurnesjum mælist nú 33 prósent. Árið 2023 var hlutfallið 22 prósent. Hækkunin er ellefu prósentustig á...
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann - Vísir
Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. Þrjár vikur eru síðan fjárlagafru...
Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðar­línuna - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðar­línuna - Vísir
Bóndakonan gerði lögreglunni viðvart um „þrjú grunsamleg ökutæki“ í Whelford, þorpi sem liggur beint austur af flugstöðinni. Hún sagði við BBC að það ...
Stundaði sveppatínslu íklæddur indíánabúningi
📅 30.09.2026 👁️ 0
Stundaði sveppatínslu íklæddur indíánabúningi
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um afbrigðilega hegðun manns í Neðra-Breiðholti í gærkvöld eða nótt. Sá reyndist vera við sveppaleit...
Talsverðu magni af haldlögðu kókaíni skipt út fyrir hveiti
📅 30.09.2026 👁️ 0
Talsverðu magni af haldlögðu kókaíni skipt út fyrir hveiti
Miklu magni af kókaíni, pökkuðu í plast, hefur verið stolið úr sönnunargagnageymslu í byggingu hæstaréttar Fiji-eyja í höfuðborginni Suva. Hveiti var ...
Leitaði að sveppum í Breið­holti í indíánabúningi - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 0
Leitaði að sveppum í Breið­holti í indíánabúningi - Vísir
Þá var einnig tilkynnt í Breiðholti um hópamyndun ungmenna við verslunarkjarna, væntanlega Mjóddina, þótt það sé ekki tilgreint. Þá var tilkynnt um gr...
Hillir undir stjórnarkreppu í Svíþjóð
📅 30.09.2026 👁️ 0
Hillir undir stjórnarkreppu í Svíþjóð
Stjórnarmyndunarviðræður hafa gengið fremur brösuglega eftir kosningar í Svíþjóð og stjórnarkreppa gæti verið í uppsiglingu. Fyrir hádegi fara formenn...
Girl has multiple surgeries to control infections after strike in Gaza
📅 30.09.2026 👁️ 0
Girl has multiple surgeries to control infections after strike in Gaza
Witnesses say Raseel's tent was hit by an Israeli helicopter strike. Israel’s military says it has no record of the attack.
Move to rejoin EU among options for UK, says Andy Burnham
📅 30.09.2026 👁️ 0
Move to rejoin EU among options for UK, says Andy Burnham
The prime minister tells the BBC the current Brexit settlement has caused "more harm than good".
Zelensky sagður hafa ljóstrað upp um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til að tryggja stuðning við vopnasölu
📅 30.09.2026 👁️ 0
Zelensky sagður hafa ljóstrað upp um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til að tryggja stuðning við vopnasölu
Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodymyr Zelensky hafi greint frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu til þes...
Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv
📅 30.09.2026 👁️ 0
Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv
Að minnsta kosti einn var drepinn og þrír til viðbótar særðust í eldflauga- og drónaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nærliggjandi h...
102% aukning í makrílráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
📅 30.09.2026 👁️ 0
102% aukning í makrílráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til að heildarmakrílafli næsta árs verði tæp 352 þúsund tonn. Það er 102% hækkun frá síðasta ári en þá hljóðaði ráðgjö...
Forsetinn viðurkennir misnotkun laga um hatursorðræðu við handtöku stjórnarandstæðinga
📅 30.09.2026 👁️ 0
Forsetinn viðurkennir misnotkun laga um hatursorðræðu við handtöku stjórnarandstæðinga
Delcy Rodriguez, sem hefur verið bráðabirgðaforseti Venesúela síðan í janúar, viðurkenndi í gær að lög landsins um hatursorðræðu hefðu verið misnotuð ...
Pentagon semur við Boeing um smíði nýrrar kynslóðar orrustuþotna
📅 30.09.2026 👁️ 0
Pentagon semur við Boeing um smíði nýrrar kynslóðar orrustuþotna
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samið við Boeing um smíði næstu kynslóðar árásar- og orrustuþotna fyrir sjóherinn. Samkvæmt tilkynningu ráðune...
Fjallasýn endurheimt í Peking
📅 30.09.2026 👁️ 0
Fjallasýn endurheimt í Peking
Ánægjuleg þróun hefur orðið á loftgæðum í Peking, höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína á síðustu árum. Þar blasir nú fjallahringurinn við flesta daga en ...
Antisemitism on the rise at universities, charity warns
📅 30.09.2026 👁️ 1
Antisemitism on the rise at universities, charity warns
The Community Security Trust says reported incidents are "substantially higher" than before the war in Gaza began.
Gömul hjörtu yngjast í ungu fólki
📅 30.09.2026 👁️ 1
Gömul hjörtu yngjast í ungu fólki
Ný rannsókn sýnir að aldur hjartaþega segi meira til um hjartaheilsu frekar en aldur hjartagjafa. Nature greinir frá en rannsóknin er enn óbirt og óri...
Myrtur af tengdaforeldrum sínum – Óhugnanlegar staðreyndir um málið koma í ljós
📅 30.09.2026 👁️ 3
Myrtur af tengdaforeldrum sínum – Óhugnanlegar staðreyndir um málið koma í ljós
Fertugur yfirmaður hjá dagblaðinu New York Times var skotinn til bana af öldruðum tengdaforeldrum sínum um helgina. Nú hafa óhugnanleg atriði málinu k...
Ukraine's prized steel industry left in ruins by Russian missile campaign
📅 29.09.2026 👁️ 1
Ukraine's prized steel industry left in ruins by Russian missile campaign
Ukraine's remaining steelworks, a vital part of its economy, have all but ground to a halt because of relentless attacks.
Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 4
Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum - Vísir
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málið var höfðað með tveimur ákærum. Fyrri ákæran var gefin út í október í október 2024 á hendur...
Chinese AI tool told researchers how to make bioweapons
📅 29.09.2026 👁️ 0
Chinese AI tool told researchers how to make bioweapons
Mindgard said it discovered in July that Kimi models K2.6 and K3 Swarm could evade developer's safety limits.
'Mum sent them £140,000': How to spot the signs a loved one is being scammed
📅 29.09.2026 👁️ 0
'Mum sent them £140,000': How to spot the signs a loved one is being scammed
Helen discovered her mum was in the grip of a romance scam - here's how she found out and broke her free.
Huel ad banned for suggesting its products could replace all conventional food
📅 29.09.2026 👁️ 4
Huel ad banned for suggesting its products could replace all conventional food
The advertising watchdog said that viewers could assume from the ad that replacing all normal food with Huel was "nutritionally appropriate".
Household energy bills forecast to see biggest rise in four years
📅 29.09.2026 👁️ 4
Household energy bills forecast to see biggest rise in four years
A typical household faces an annual gas and electricity bill of £1,999 from January, based on a key forecast.
Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga - Vísir
Vinstri flokkarnir fjórir í Svíþjóð fögnuðu þegar úrslit úr kosningunum þann 13. september voru ljós. Hafði þeim þá tekist að fella þingmeirihluta rík...
Lögmönnum ekki skylt að veita upplýsingar um þiggjendur skattráðgjafar
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lögmönnum ekki skylt að veita upplýsingar um þiggjendur skattráðgjafar
Lögmönnum er ekki skylt að veita skattayfirvöldum upplýsingar um umbjóðendur sína sem þegið hafa skattráðgjöf, ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsy...
Trent Alexander-Arnold: It is time for Thomas Tuchel to trust Real Madrid right-back
📅 29.09.2026 👁️ 1
Trent Alexander-Arnold: It is time for Thomas Tuchel to trust Real Madrid right-back
Having been overlooked for so long, Trent Alexander-Arnold produced a world-class moment on his return, writes Phil McNulty.
Stefán greinir frá hótunum sýslumanns – „Hann gæti gert helgina mjög erfiða fyrir mig“
📅 29.09.2026 👁️ 4
Stefán greinir frá hótunum sýslumanns – „Hann gæti gert helgina mjög erfiða fyrir mig“
Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands sem skipulagði tónlistarhátíðina Eistnaflug á Neskaupstað árum saman, greinir frá því að sýslu...
Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðli­lega vel“ - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðli­lega vel“ - Vísir
Hún opnar sig um málið í myndbandi sem hún birti á TikTok-síðu sinni en þar byrjar hún á því að segjast sjálf búa yfir ríflega tíu ára reynslu í heimi...
Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald - Vísir
Málið er til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar.  Mbl.is greinir frá. Lögregla bíði nú eftir því að fá læknisvottorð um áverka konun...
Karl Th. Birgis­son borinn til grafar - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Karl Th. Birgis­son borinn til grafar - Vísir
Fjöldi minningargreina birtist í dag í Morgunblaðinu en sömuleiðis hefur flóð minningarorða fallið á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að andlátsfregn va...
Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma
📅 29.09.2026 👁️ 3
Heilbrigðisþjónusta á vegum félagasamtaka barn síns tíma
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundi...
Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 2
Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins - Vísir
EFTA-dómstóllinn komst að niðurstöðunni í dag. Lögmannafélagið væntir þess að ráðgefandi dómur dómstólsins brýni fyrir stjórnvöldum og skattyfirvöldum...
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
📅 29.09.2026 👁️ 3
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind For­svars­menn tæknifyr­ir­tækja hafa skuld­bund­ið sig til að setj...
Hækkandi verðbólga – „Það er varla hægt að búa hér lengur“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Hækkandi verðbólga – „Það er varla hægt að búa hér lengur“
„Þetta er skelfilegt, alveg hreint, skelfilegt. Þetta ætlar engan endi að taka, sko, einhvern veginn,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir um hækkun verðbólg...
Lína Birgitta rýfur þögnina um stóra umboðsmanna málið - „Misskilningur hjá áhrifavaldinum sjálfum“
📅 29.09.2026 👁️ 3
Lína Birgitta rýfur þögnina um stóra umboðsmanna málið - „Misskilningur hjá áhrifavaldinum sjálfum“
Lína Birgitta, eigandi fatabúðarinnar Define the Line og unnusta Gumma Kíró, kemur honum og umboðsskrifstofu hans Atelier til varnar í myndbandi á Tik...
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma
📅 29.09.2026 👁️ 3
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur tjáð sig um óvenjulegan svefntíma Donald Trump forseta. Forsetinn vakir oft á næturnar en á erfitt með að h...
Manchester City charges: The intricate web spun to con the Premier League
📅 29.09.2026 👁️ 0
Manchester City charges: The intricate web spun to con the Premier League
The 40-page document which confirmed Manchester City were found guilty of inflating sponsorship income makes fascinating reading. Here's what it sets ...
Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum - Vísir
📅 29.09.2026 👁️ 3
Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum - Vísir
Samtökin hafa legið í dvala síðastliðin ár en nú hefur ný stjórn verið skipuð og var nýr formaður þeirra, Brynhildur Bolladóttir, einn gesta í nýjasta...
Hundreds attend controversial Mulbarton v Woodford FA Cup replay
📅 29.09.2026 👁️ 0
Hundreds attend controversial Mulbarton v Woodford FA Cup replay
The controversial replay follows the FA ruling a referee had made a mistake in the initial match.
Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki
📅 29.09.2026 👁️ 3
Eistar saka Rússa um tilraun til íkveikju í vopnafyrirtæki
Forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, sakaði rússnesku leyniþjónustuna í dag um að bera ábyrgð á tilraun til íkveikju í vopnaframleiðslufyrirtæk...
Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni
📅 29.09.2026 👁️ 3
Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa veitt konu alvarlega áverka í íbúð sinni
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishús...