Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, fundaði einslega með oddvitum Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í dag.
Á fundunum var möguleg myndun nýs meirihluta í borginni rædd. Öllum fundunum er lokið en oddvitarnir vildu ekki veita viðtöl að þeim loknum.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hildur ekki boðað fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til fundar en að öllum líkindum dregur til tíðinda um formlegar meirihlutaviðræður um helgina.