Oddný G. Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir flokkinn vera að „ruglast“ með stuðningi sínum við lög um brottfararstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
„Ef Jafnaðarflokkur Íslands er kominn í andstöðu við mannréttindasamtök svo sem Rauða krossinn, Barnaheill, Unicef og einnig umboðsmann barna er flokkurinn eitthvað aðeins að ruglast. Alla vega eru lög sem heimila frelsissviptingu barna ekki sett í mínu nafni,” sagði Oddný í færslu á Facebook í gærkvöldi og lét fylgja með opið bréf sem hún og fjöldi áhrifafólks í Samfylkingunni birti á Vísi í gær.
Sjá einnig: Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“
Í bréfinu var nýjum lögum um brottfararstöð mótmælt og krafist að framkvæmd þeirra verði stöðvuð. Auk Oddnýjar lögðu nafn sitt við bréfið fyrrverandi þingmenn flokksins, þar á meðal Björgvin G. Sigurðsson og Guðmundur Andri Thorsson. Þá er einn núverandi borgarfulltrúi á listanum, Stein Olav Romslo.
Margir taka undir með Oddnýju í færslunni og bendir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, á að aðrar og vægari leiðir séu færar en brottfararstöð.
„Það hefur verið bent á vægari úrræði, eins og ökklabönd (á foreldrana, ekki börnin). Það þykir duga að nota þau á brotamenn sem eru að afplána dóma fyrir afbrot – þá hlýtur að mega nota þau í þessu tilviki,“ segir hann til dæmis í athugasemd við færsluna sem má sjá í heild hér að neðan: