Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 2. júní. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks mun leggja fram ýmsar tillögur. Kosning borgarstjóra auk forseta og varaforseta borgarstjórnar fer fram á fundinum og einnig kosið. Þetta kemur fram í fundardagskrá borgarstjórnar.
Endurvekja öldungaráð
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hyggjast leggja fram tillögur um stofnun þriggja nýrra ráða: leikskóla- og daggæsluráðs, menningarráðs og öldungaráðs. Meirihluti Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalista lagði niður öldungaráð í fyrra og færði verkefni þess til mannréttindaráðs.
Þá leggur meirihlutinn einnig til að stafrænt ráð verði lagt niður, breytingar á heiti og verkefnum menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar og stofnun stýrihóps um hagræðingar- og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu.
Endurskoða Suðurlandsbraut og samgöngunsáttmála
Fulltrúar meirihlutans leggja einnig til að reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar verði felldar niður.
Sjálfstæðismenn í borginni hafa áður lýst því yfir að þeir vilji láta hanna sérstakan friðarfána svo ekki þurfi að flagga erlendum þjóðfánum við húsið og að íslenskum fána verði flaggað við ráðhúsið nær alla daga. Fánum Úkraínu, Palestínu og Grænlands hefur verið flaggað við ráðhúsið undir stjórn fyrri meirihluta til þess að sýna þjóðunum samstöðu.
Á fundinum verða lagðar fram tillögur um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og deiliskipulags við Suðurlandsbraut.
Þá hyggst meirihlutinn einnig leggja fram tillögur um samstarf við atvinnulíf um rekstur leikskóla og daggæslu og lengri opnunartíma sundlauga.