Sunna María Jóhannsdóttir, af G-lista, tekur við sem oddviti sveitarstjórnar og til vara verður Bjarki Brynjólfsson, af H-lista. Róbert Fanndal Jósavinsson frá G-lista verður formaður framkvæmda- og rekstrarnefndar.
„Samstarfið byggir á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri ábyrgð á framtíð sveitarfélagsins. Markmið samstarfsins er að tryggja ábyrgð í rekstri, góða þjónustu við íbúa og skynsamlega uppbyggingu samfélagsins,“ segir í fréttatilkynningu.
„Listarnir leggja áherslu á að vinna saman af heilindum og virðingu og stuðla að góðu samstarfi innan sveitarstjórnar og við íbúa sveitarfélagsins.“
Gróska hlaut flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum og alls tvo fulltrúa. H-listinn fékk einn kjörinn fulltrúa. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 hlaut Gróska hreinan meirihluta en þá voru einungis tveir listar í boði.
Í minnihluta í fimm manna sveitarstjórninni verða tveir fulltrúar D-lista Sjálfstæðismanna.