K-listi Dalvíkurbyggðar, Framsóknarflokkurinn og óháðir munu mynda nýjan meirihluta í Dalvíkurbyggð.
Helgi Einarsson verður formaður byggðarráðs á kjörtímabilinu, Monika Margrét Stefánsdóttir mun gegna embætti forseta sveitarstjórnar og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir verður sveitarstjóri.
Í tilkynningu segir að meirihlutinn telji mikilvægt að tryggja stöðugleika í stjórnsýslu sveitarfélagsins og byggja áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem fyrir hendi er innan stjórnsýslunnar.
Þá mun markmið samstarfsins vera að tryggja ábyrga og trausta stjórn sveitarfélagsins, efla þjónustu við íbúa og styðja við áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs, innviða og samfélags í Dalvíkurbyggð. Þá verði lögð sérstök áhersla á gott samstarf við íbúa, rekstrarlegt aðhald og framsækna uppbyggingu á öllum sviðum sveitarfélagsins.