Samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup ætlar naumur meirihluti landsmanna að hafna frekari aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Í könnuninni kemur fram að algjör viðsnúningur virðist orðið á afstöðu ungs fólks. Flestar kannanir undanfarið hafa gefið til kynna að já sé með nauman meirihluta og því sætir þessi könnun óneitanlega tíðindum.RÚV greinir frá niðurstöðu könnunarinnar.
Ný könnun: Naumur meirihluti ætlar að segja nei - Algjör viðsnúningur meðal ungs fólks