Meirihluti landsmanna ætlar að segja Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið, þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir DV. Þegar horft er einvörðungu til þeirra sem taka afstöðu þá ætla 53,1 prósent að segja Já en 46,9% að segja Nei.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst verður spurt „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“, spurt var sömu spurningar í könnun Maskínu fyrir DV.
Í þingsályktunartillögunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna verða einungis tveir valkostir, Já eða Nei. Í könnun Maskínu var einnig gefinn kostur á að svara Veit ekki eða Vill ekki svara, af öllum sem voru spurðir svöruðu 14,6 prósent Veit ekki og 1,5 prósent Vil ekki svara. Þegar þeir eru teknir með í reikninginn ætla 44,5 prósent að segja Já og 39,4 prósent að segja Nei.

Lítill munur er á milli kynja, 53,4 prósent karla og 52,6 prósent kvenna ætla að segja Já. Munurinn er nokkur þegar litið er aldurshópa. Fólk á aldrinum 40 til 49 ára er líklegast til að segja Já eða 59,5 prósent, þá er fólk 70 ára og eldra líklegast til að segja Nei eða 53,1 prósent.
52,3 prósent fólk á aldrinum 18 til 29 ára ætla að segja Já, sama á við um 54 prósent fólks á aldrinum 30 til 39 ára og 51,3 prósent fólks á aldrinum 50 til 69 ára.
Mikill munur á höfuðborginni og Austurlandi
Munurinn er enn meiri þegar litið er til búsetu. Í Reykjavík ætla 59 prósent að segja Já, 56 prósent í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Á landsbyggðinni ætlar meirihlutinn að segja Nei, 52,6 prósent á Vesturlandi og Vestfjörðum, 55,5 prósent á Norðurlandi, 52,1 prósent á Suðurlandi og Reykjanesi, á Austurlandi ætla 76,1 prósent að segja Nei.

Einnig er að finna mun þegar litið er til menntunar. Meira en helmingur þeirra sem hafa lokið grunn- og framhaldsskólanámi ætlar að segja Nei, en 60,6 prósent fólks með háskólapróf ætlar að segja Já.
Þegar litið er til tekna ætla 53,5 prósent fólks með mánaðartekjur undir 550 þúsund krónum að segja Nei. Meira en helmingur þeirra sem hafa laun hærri en 550 þúsund krónur á mánuði ætla að segja Já, 57,4 prósent þeirra sem hafa laun á milli milljón og 1.399 þúsund krónur og 58,1 prósent þeirra sem hafa laun á milli 1.400 þúsund og tveimur milljónum á mánuði. 54 prósent fólks með yfir tvær milljónir króna í mánaðarlaun ætla að segja Já.
Línur skiptast eftir flokkum
Munurinn er töluverður þegar litið er til hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi kjósa til Alþingis í dag. Meira en helmingur eða 55,7 prósent stuðningsfólks Flokks fólksins ætlar að segja Já. Sama á við um 95,3 prósent stuðningsfólk Viðreisnar, 91 prósent Samfylkingarinnar, 89,9 prósent Pírata, 83,3 prósent Vinstri grænna og 71,6 prósent Sósíalistaflokks Íslands.
Þá ætlar 88,6 prósent stuðningsfólks Miðflokksins að kjósa Nei, 85,3 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og 68,9 prósent Framsóknarflokksins.

Könnunin fór fram dagana 2. til 11. júní og voru svarendur 1.856 talsins, þar af tóku 1.558 afstöðu.
Meirihluti andvígur inngöngu í Evrópusambandið
Í vikunni kom út könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið, þar var spurt hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Samkvæmt þeim niðurstöðum eru 54 prósent andvíg inngöngu og 46 prósent hlynnt, þegar þeir sem svöruðu Hvorki né voru teknir með í reikninginn voru 39 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið, 16 prósent hvorki né og 46 prósent andvíg.
Í könnun sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið í mars síðastliðnum kom fram að 42 prósent fólks var hlynnt því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju, 39 prósent fólks var því andvígt.