Í nýjum þjóðarpúlsi Gallups, sem RÚV birti í kvöld, segist naumur meirihluti þeirra sem svara ætla að segja nei við framhaldi aðildarviðræðna, sem er viðsnúningur frá síðustu könnun, en fram til þessa hefur verið lítill meirihluti með Já-inu. Munurinn er ekki tölfræðilega marktækur þannig að í raun má segja að allt sé hnífjafnt nú þegar aðeins er eftir einn dagur áður en gengið verður að kjörborði.
Ný Gallup könnun: Svarhlutfallið svo lágt að erfitt er að draga ályktanir