Ísland er langt á eftir hinum Norðurlöndunum hvað varðar myndtúlkun og túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa, segir Daði Hreinsson, formaður Félags heyrnarlausra. Menningarhátíð sem þessi er haldin á fjögurra ára fresti og fer á milli Norðurlandanna. Síðast var hún hér á landi árið 2006 og þá haldin á Akureyri en nú er það Selfoss.
„Það koma bæði fyrirlesarar og leiklistarhópar frá Norðurlöndunum til að halda uppi öflugu og skemmtilegu menningarstarfi og auðvitað fer þetta allt fram á táknmáli. Þetta er náttúrulega bara fyrir fólk að hittast og njóta viðburða á sínu tungumáli, það er að segja táknmálinu,” segir Daði.
Daði segir að heimamenn á Selfossi þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur sjái þeir hópa af fólki sem er að tákna af miklum krafti, þau séu bara að spjalla, hlæja og njóta lífsins. Þá er gaman að segja frá því að Sveitarfélagið Árborg hefur útbúið nokkur myndbönd með ýmsum þjónustuaðilum á Selfossi þar sem heyrnarlausir frá Norðurlöndum eru boðnir velkomnir á menningarhátíðina.
En hver eru helstu baráttumál heyrnarlausra í dag?
„Helstu baráttumál, þau eru kannski mismunandi eftir löndum. Við náttúrulega erum langt á eftir Norðurlöndunum, sem sagt í baráttunni í myndsímatúlkun og túlkaþjónustu og túlkun í atvinnulífinu svokölluðu,” segir Daði.
Einn af hápunktum menningarhátíðarinnar fer fram í Sigtúnsgarði, sem er við nýja miðbæinn, laugardaginn 1. ágúst eftir hádegi en þar verður svonefndu Döff þorpi komið upp þar sem fjölbreytt ókeypis dagskrá verður í boði fyrir alla.
En hvað eru margir heyrnarlausir á Íslandi í dag?
„Það eru í kringum 220 heyrnarlausir á Íslandi og svo fer þessu samfélagi fækkandi, það er að segja táknmálstalandi samfélagi, því að börn sem fæðast með heyrnarskerðingu í dag fara oftast í kuðungsígræðslu,” segir Daði.