Hákon Noregskonungur minntist föður síns Haraldar í hjartnæmri minningarræðu frá konungshöllinni í gær sem sýnd var í beinni útsendingu á norska ríkisútvarpinu. Þetta er fyrsta ræða Hákons eftir fráfall Haraldar sem lést á ríkisspítalanum í Osló í gærmorgun 89 ára að aldri.
Hákon sagði fjölskylduna syrgja en á sama tíma veitti það þeim huggun og styrk að sjá svo marga syrgja með þeim. Hann sagði að það hafi verið áhrifamikil og hjartnæm upplifun að sjá svo marga leggja leið sína á Hallartorgið og skilja eftir blóm, kveðjur og kerti.
Mikill fjölskyldumaður sem sameinaði þjóðina
Hákon sagði Harald hafa reynst sér og Mörtu systur sinni góður faðir og verið hlýr og fyndinn afi. Hann sagði að Haraldur hefði einnig verið Sonju drottningu góður eiginmaður og í dag hefðu þau fagnað 58 ára brúðkaupsafmæli hefði hann lifað.
Hákon sagði að Haraldur hefði haft einstakt lag á að ná til fólksins og takast á við ólíkar aðstæður hverju sinni. Hann sýndi öllum virðingu og mismunaði aldrei fólki. Hann sameinaði þjóðina og naut virðingar í Noregi jafnt sem erlendis.
Nú er röðin komin að honum
Hákon varð konungur strax við fráfall föður síns. Hann sagði stór verkefni bíða sín en rétt eins og Haraldur hefði kennt þeim öllum, þá þyrfti hver og einn að finna sinn farveg og á sinn hátt. Nú væri komin röðin að honum.
Hann sagðist þakklátur fyrir fjölskyldu sína og stuðninginn sem þau hefðu hvort frá öðru. Samstaðan væri þeirra helsti styrkur fyrir Noreg. Það væri undir þeim komið að fylgja hvoru öðru inn í nýja tíma eftir langa og viðburðarríka valdatíð Haralds konungs.
Allt fyrir Noreg
Hákon sagðist einnig þakklátur forverum sínum sem voru konungar á undan sér. Þeir hafi verið elskaðir og virtir og notið aðdáunar margra. Hákon hafi lært mikið af þeim öllum. Rétt eins og Hákon konungur, Ólafur konungur og Haraldur konungur, hefur Hákon ákveðið að sín einkunnarorð verði þau sömu og þeirra, Allt fyrir Noreg.
Hann sagði einkunnarorð þeirra þýða að berjast fyrir því að öll fái tækifæri til að lifa frjálsu lífi. Það þýði jafnframt að bera ábyrgð á að, að þjóðin leggi sitt af mörkum með jákvæðum hætti til heimsins. Og Hákon bætti við að það þýði í versta falli að að vera viljug til að hætta öllu, líka lífinu fyrir frelsi og sjálfstæði Noregs því friður landsins sé í húfi.
Hákon sagði fjölskylduna syrgja Harald og þjóðina einnig. Hann lauk ræðu sinni á að þakka Haraldi konungi fyrir allt sem hann stóð fyrir og allt sem hann gerði fyrir Noreg. Með Guðs hjálp og stuðningi fólksins sagðist hann hlakka til að takast á við það stóra verkefni sem fram undan væri og bað þjóðina um að sameinast í þeirri ósk að Guð varðveiti landið þeirra.
Minningarguðsþjónustur víða um Noreg í dag
Minningarguðsþjónustur verða haldnar í kirkjum víða um Noreg í dag, þar á meðal í öllum tólf dómkirkjum landsins. Þær verða allar opnar almenningi. Norska ríkisútvarpið, NRK, sýnir beint frá minningarguðsþjónustu í dómkirkjunni í Ósló klukkan níu í fyrramálið að íslenskum tíma og frá minningarguðsþjónustu í dómkirkjunni í Niðarósi klukkan þrjú.
Þjóðarsorg var lýst yfir í Noregi á föstudag. Ekki hefur verið ákveðið hvenær útför konungs verður gerð.