Nokkrir eru særðir eftir að skotum var hleypt af í Seattle Center. Árásin var gerð í námunda við Geimnálina, eitt þekktasta kennileiti Seattle-borgar í Bandaríkjunum.
Lögreglan rannsakar skotárásina og hefur beðið fólk um að halda sig fjarri. Enn er óljóst hvað gerðist og hversu margir eru særðir.
Seattle Center er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar var matarhátíðin Bite of Seattle í fullum gangi þegar árásin varð. Hún dregur árlega að sér hundruð þúsunda gesta.