Níu ESB-ríki sendu í gær opið bréf til Glenn Micallef, framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu sem fer með stuðning við íþróttasamtök, og fóru þess á leit að Evrópusambandið hætti stuðningi við Alþjóðaólympíunefndina (IOC) og önnur alþjóðleg íþróttasamtök sem tekið hafa þá ákvörðun að leyfa íþróttafólki frá Belarús og Rússlandi að taka þátt í alþjóðlegum viðburðum.
Þátttaka fólks frá þessum ríkjum var sett á ís í kjölfar allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu vorið 2022.
Aðildarríkin níu eru Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Eistland, Lettland, Litáen, Pólland, Holland og Rúmenía. Meðal þess sem þau leggja til er að viðkomandi íþróttasamtökum verði meinuð þátttaka í Erasmus+ áætluninni um nemendaskipti og ferðalög ungs fólks. Ísland tekur þátt í þessari áætlun í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Alþjóðaólympíunefndin ákvað 7. júlí að aflétta banni við þátttöku íþróttafólks frá Belarús og Rússlandi, án þess þó að taka ákvörðun um hvort þau mættu bera fána eða auðkenni heimalanda sinna. Forseti nefndarinnar sagði við það tækifæri að íþróttafólk ætti ekki að líða fyrir aðgerðir stjórnvalda heimafyrir.
Ákvörðunin hefur víða mælst illa fyrir, meðal annars hjá norsku ólympíunefndinni, sem lýsti samdægurs yfir óánægju sinni.
Sameiginleg andstaða norrænu íþróttasamtakanna enn í gildi.
Íþróttasamtök á öllum Norðurlöndunum, þar með talið á Íslandi stóðu saman að yfirlýsingu fyrir þremur árum, þar sem þáttöku íþróttafólks frá Belarús og Rússlandi í alþjóðlegum viðburðum var með öllu hafnað.
Sú sameiginlega afstaða er óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá norsku samtökunum og Íþrótta og ólympíusambandinu á Íslandi.
Sammen med våre nordiske søsterorganisasjoner har vi et tydelig og konsist standpunkt i dette spørsmålet. I dagens situasjon ønsker vi ikke russisk og belarusisk deltakelse i internasjonal idrett. Dette nordiske standpunktet er helt i tråd med de vedtak som idrettsstyret har fattet i saken, og er et standpunkt vi vil fortsette å legge frem i ulike internasjonale fora
Í fundargerð framkvæmdastjórnar Íþrótta- og ólympíusambandsins frá því í maí kemur fram að fjallað hafi verið um ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar um að aflétta banni af keppendum frá Belarús. Þar kemur einnig fram að sameiginleg yfirlýsing Norðurlandanna sé enn í gildi.
Þetta hefur ekkert breyst, segir Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ.
„Við höfum verið í samfloti með okkar norrænu systursamtökum og þetta er okkar sameiginlega afstaða,“ sagði Willum í samtali við RÚV í dag.
„Málið verður rætt á fundi norrænu samtakanna sem verður á Íslandi í september, en það verður einnig tekið fyrir á næsta fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í ágúst.“
Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra ákvað fyrr á þessu ári að leyfa keppendum frá Belarús og Rússlandi að keppa undir þjóðfánum sínum.
Sú ákvörðun var einnig harðlega gagnrýnd; sjö ríki, þar á meðal Ísland stóðu að sameiginlegri yfirlýsingu þar sem þessi ákvörðun var fordæmd.