Samtök iðnaðarins kalla eftir því að efnahagsmál verði sett í forgang. Framkvæmdastjóri samtakanna segir niðurstöðuna ekki fela í sér stuðning við óbreytt ástand.
Þjóðarsátt stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að stjórnvöld þurfi nú að ráðast í umbætur til að ná niður verðbólgu og vöxtum, tryggja næga raforku, hraða uppbyggingu innviða og bæta skilyrði fyrir fjárfestingar og nýsköpun. Til þess þurfi þjóðarsátt stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
„Samtalið síðustu vikur og mánuði hefur dregið það skýrt fram að það er ákall í samfélaginu, bæði frá landsmönnum og fyrirtækjum, um stöðugleika og aukinn fyrirsjáanleika og því verða stjórnvöld að mæta tafarlaust. Það þarf að taka efnahagsmálin miklu fastari tökum og setja samkeppnishæfni í algjöran forgang.“
EES-samningurinn mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands
Þrátt fyrir niðurstöðuna úr þjóðaratkvæðagreiðslunni segir Sigurður Evrópu áfram vera mikilvægasta markaðssvæði íslensks iðnaðar og EES-samninginn mikilvægasta viðskiptasamning Íslands. Það sé því mikilvægt að stjórnvöld móti skýra stefnu um hvernig tryggja eigi hagsmuni Íslands innan EES.
„Það þarf að fara í aðgerðir til þess að einfalda regluverk. Það þarf að styðja EES-samninginn núna þegar að þessi niðurstaða liggur fyrir. Við þurfum að sjá umbætur í menntamálum, meiri fyrirsjáanleika til dæmis fyrir hugverkaiðnað sem er vaxandi stoð og gæti orðið verðmætasta útflutningsstoðin í lok áratugarins.“