Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað ísraelska hernum að ná stjórn á allt að 70 prósent Gaza-svæðisins. Áformin ganga gegn vopnahléssamningi sem gerður var í október á síðasta ári.
Netanjahú greindi frá þessu á ráðstefnu á Vesturbakkanum þar sem hann sagði Ísrael nú þegar stjórna um 60 prósent af Gaza. „Við erum að þrengja að Hamas. Við stjórnum nú 60 prósent svæðisins og fyrirmæli mín eru að fara upp í 70 prósent,“ sagði forsætisráðherrann samkvæmt frétt The Guardian.
Samkvæmt vopnahléssamningnum dró ísraelski herinn sig áður til baka að svokallaðri „gulri línu“, sem skipti Gaza í svæði undir stjórn Ísraels annars vegar og Hamas hins vegar. Ísrael hafði samkvæmt samningnum beina stjórn á um 53 prósentum landsvæðisins á meðan frekari friðarviðræður færu fram.
Í fréttatilkynningu Sameinuðu þjóðanna er vísað til þess að hersveitir gegn Hamas, sem njóta stuðnings Ísraelsmanna og eru undir stjórn stríðsherra á Gaza, Ashrafs al-Mansi, hafi færst vestur á bóginn frá gulu línunni umhverfis Jabalia í síðustu viku. Yfir 900 Palestínumenn hafa fallið frá því vopnahléssamkomulagið tók gildi í október.
Frekari útvíkkun yfirráðasvæðis Ísraela leiði til þess að um 2,2 milljónir Palestínumanna gætu þá þurft að hafast við á innan við þriðjungi svæðisins, sem sé þegar eitt þéttbýlasta svæði heims.