Nemendur við Listaháskóla Íslands (LHÍ) sem koma frá löndum utan EES-svæðisins munu þurfa að borga á bilinu 4,5 til 5,5 milljónir króna í skólagjöld fyrir komandi skólaár.
Nýtt frumvarp háskólaráðherra kveður á um að innheimt verði skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins. Alþingi greindi frá því á miðvikudag að lögin taki ekki gildi fyrr en 1. júlí nk.
Skólagjöld til LHÍ verða að greiðast fyrir 20. júní næstkomandi.
Sama fyrirkomulag í nágrannaríkjunum
„Við erum búin að vera upplýst um þetta í töluverðan tíma og í grunninn snýr þetta að fjármögnun þessara nemenda þar sem við fáum ekkert fjármagn með þessum nemendum,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor LHÍ, í samtali við mbl.is.
Hún segir að svipað fyrirkomulag hafi nú þegar verið innleitt í flestum nágrannalöndum okkar.
„Listnám er auðvitað mjög dýrt og það er mikið af einkatímum og slíku og því fylgir mikill kostnaður,“ segir hún.
Listnám alltaf dýrara
„Við lögðumst bara yfir þetta mjög vel og reiknuðum raunkostnað við námið fyrir nemendur utan þessa svæðis.“
Kristín segir ástæðu þess að gjöldin verði innheimt nú í haust en ekki á næsta skólaári eins og í Háskóla Íslands vera að listnám er alltaf mun dýrara en annað nám.
„Við getum ekki farið aðra leið en þessa, við getum ekki tekið við nemendum án þess að fá viðeigandi fjármagn.“
