Úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið liggja fyrir og íslenska þjóðin hefur sagt nei. Viðbrögð við úrslitunum streyma inn á samfélagsmiðla. Nei-sinnar eru ánægðir en já-fólk á sumt hvert bágt með að leyna mikilli ónægju sinni. Meðal harðra nei-sinna er nú kallað eftir því að Ísland einfaldlega snúi sér frá ríkjum ESB en svekktir já-sinnar segja það nú í höndum nei-sinna að finna töfralausn á því sem ekkert hafi gengið að ná til framtíðar á Íslandi, efnahagslegum stöðugleika.
Nei-sinnar fagna en Já-fólk svekkt - Hamingjuóskir frá heimsfrægum fjandvini ESB og kallað eftir breyttri utanríkisstefnu