Lögregla lagði út tvær naglamottur í tilraun til að stöðva ungan ökumann sem ók á ofsahraða eftir Reykjanesbraut í gærkvöldi. För hans lauk ekki fyrr en hann ók aftan á aðra bifreið við fráreinina að Breiðholtsbraut í Reykjavík.
Þrír voru fluttir á Landspítalann eftir áreksturinn, ökumaðurinn sjálfur og tveir sem voru í bifreiðinni sem hann ók aftan á.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi um bifreið sem var ekið á miklum hraða frá Suðurnesjum og eftir Reykjanesbraut í átt að Hafnarfirði.
Elti hann í gegnum höfuðborgarsvæðið
Eftirför lögreglu hófst í Hafnarfirði og hélt ökumaðurinn áfram eftir Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík. Á meðan á eftirförinni stóð ók hann einnig um stund inn í Áslandshverfið í Hafnarfirði.
Lögreglumenn reyndu að stöðva förina með tveimur naglamottum. Önnur var lögð út í Hafnarfirði og hin í Garðabæ, en það dugði ekki til að stöðva ökumanninn.
Endaði utan vegar eftir árekstur
Eftirförinni lauk þegar ökumaðurinn ók aftan á aðra bifreið við fráreinina frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut. Við höggið fóru báðir bílarnir út af veginum.
Tveir voru í bílnum sem ekið var á. Þeir voru báðir fluttir á slysadeild, en samkvæmt lögreglu er ekki talið að meiðsli þeirra séu alvarleg.
Ökumaðurinn, sem er piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi. Hann var síðan fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.
Lögregla segir aksturslag hans hafa skapað mikla hættu fyrir aðra vegfarendur.