Eru það töluverðar vendingar en Framsóknarflokkurinn hefur setið í meirihluta í sveitarfélaginu síðustu tuttugu og fjögur ár.
Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðismanna, verður nýr sveitarstjóri í Skagafirði og tekur við af Sigfúsi Inga Sigfússyni. Sá hefur verið sveitarstjóri síðan 2018.
Stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins er Sauðárkrókur. Meðal annarra kjarna má nefna Hofsós, Hóla í Hjaltadal og Varmahlíð.
Á kjörskrá í kosningunum voru 3297 og var kjörsókn tæp sjötíu og átta prósent.