„Að reka leikhús er stundum eins og að reka barnaheimili,“ segir Egill, sem er öllu vanur.
„Þetta er mikil söngsýning. Það er ekki forsvaranlegt að setja veikt fólk á svið eða að áhorfendur sem mæta einn daginn fái verri upplifun.“
Þau sem hafi átt miða á sýningarnar fái tilkynningu um að sýningin hafi verið felld niður og að hafa samband við starfsfólk í miðasölu Borgarleikhússins varðandi endurbókun. Aðeins sex sýningar eru eftir þetta leikárið og ekki verður unnt að bæta við fleiri sýningum. Það er þó þegar í skoðun að bæta við fleiri sýningum í haust.
Egill segir þetta alltaf leiðinlegt en það sé ljós punktur hve miklum skilningi starfsfólk Borgarleikhússins hafi mætt frá þeim sem áttu bókaða miða á sýningarnar tvær.
Egill segir að vonir standi til að leikhópurinn stígi á stokk á morgun samkvæmt áætlun.
„Við verðum að játa okkur sigruð þessa tvo daga. Við vonum á morgun að pensillíninu hafi tekist að vinna bug á bakteríunni.“
Sýningin þykir veisla fyrir augu og eyru og hlaut fjóra og hálfa stjörnu í dómi Símons Birgissonar.