Á þriðja tug manna mætti fyrir utan Víkingsheimilið í kvöld til að mótmæla leik Víkings og ísraelska knattspyrnuliðsins Hapoel Beer-Sheva. Mótmælendur mættu með skilti og hrópuðu einkunnarorðin „Palestine will be free“ til að vekja athygli á málstað sínum og leita eftir viðbrögðum frá Knattspyrnusambandi Íslands.
Aðgerðin var boðuð af Félaginu Ísland-Palestína sem gagnrýndi KSÍ fyrir aðgerðarleysi og fyrir að leyfa leiknum að fara fram. Í tilkynningu frá skipuleggjendum kom fram að óásættanlegt væri að íslensk lið þyrftu að mæta fyrrverandi liðsmönnum Ísraelshers á knattspyrnuvöllum landsins.
Félagið segist vilja byggja upp samstöðu milli Palestínuhreyfingarinnar og fótboltahreyfingarinnar og vinna saman að því að sýna að stuðningur við mannréttindi og íþróttahreyfinguna fari vel saman.