Morðinginn Matthías kominn á Vernd

Vernd
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matthías Erling Björnsson, einn sakborninga í Gufunesmálinu, afplánar nú eftirstöðvar fangelsisdóms síns utan fangelsis á áfangaheimili Verndar, samkvæmt heimildum DV.
Matthías var sakfelldur ásamt Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvasyni fyrir að hafa orðið Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í mars 2025 eftir frelsissviptingu og alvarlegar misþyrmingar. Hann hlaut upphaflega 14 ára fangelsisdóm sem síðar var lækkaður í 12 ár í Landsrétti.
Samkvæmt lögum um fullnustu refsinga geta fangar, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, afplánað hluta refsitímans utan fangelsis undir eftirliti. Heimildir DV herma að Matthías hafi sýnt góða hegðun í fangelsi og sinni nú vinnu þar sem hann er lítt áberandi.