Ambur eða ambergris er vaxkenndur klumpur sem verður til í meltingarvegi búrhvala, sem þeir síðan æla eða skyrpa út úr sér. Klumpinn getur síðan rekið um hafið þangað til hann nær ströndu.
Nýverið auglýsti eigandi kaupumgull.is eftir að fá keypt ambur og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Tæplega 50 athugasemdir hafa borist honum og fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga.
„Það eru nokkrir dagar síðan ég póstaði þessu og viðbrögðin ofsalega mikil. Ég hélt kannski að einhver einn myndi hafa samband en það eru margir búnir að hafa samband. Ég sé það bara að fullt af fólki hefur haft samband og það er að ganga fjörur. Fólk er með hunda sem það vill koma með að þefa af efninu og fara svo að leita. Þetta gæti orðið ábótasamur göngutúr en ef ekkert finnst er þetta bara góð hreyfing,“ segir Sverrir Eiríksson, eigandi kaupumgull.is.
Fjársjóður við fætur þér
Ambur finnst í íslenskum fjörum. Ef vegfarandi er svo heppinn að ganga fram á klump eru nokkrir hlutir sem geta staðfest hvort hann hafi fundið ambur. Klumpurinn er eins og kalt smjör eða vax viðkomu. Þá er lyktin oft eins og sætur sjávarkenndur moldarilmur. Það eru eiginleikar efnisins og hvernig það nýtist í ilmvatnsgerð sem gera ambur svona verðmætt.
„Þetta er svona á pari við gull. Getur verið ef þetta er gott efni. Kílóverðið getur verið svona frá 5000 dollurum kílóið alveg upp til 50.000 dollara kílóið.“
Ástralir hafa gengið það langt að banna notkun á ambri við ilmvatnsgerð, til þess að koma í veg fyrir að búrhvalir séu veiddir af þeim sem freista þess að finna efnið í meltingarvegi hvalanna. Aðspurður segir Sverrir gríðarlega eftirspurn eftir ambri.
„Já, það er gríðarleg eftirspurn. Þetta hefur stundum verið kallað fljótandi gull hafsins.“