Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri hjá CERT-IS, segir öryggisgallann í PHP-forritunarmálinu sem kom upp í dag mjög alvarlegan. Á kvarða sem notaður er til að meta veikleika í tölvukerfum fær hann einkunnina 9,2 af 10. Gallinn sé ekki síður alvarlegur út frá því hve útbreitt forritunarmálið sé. Oft sé talað um að 70% vefsíðna reiði sig á PHP-forritunarmálið.
Upplýsingar um veikleikann ásamt uppfærslu átti að gefa út á morgun en upplýsingunum var lekið í gær.
„Við tók smá ys og þys í netöryggisheiminum. Fólk var byrjað að taka niður vefi í dag til að bíða eftir uppfærslunni sem var gefin út klukkan tvö á íslenskum tíma,“ sagði Bjarki Þór í sjónvarpsfréttum í kvöld.
Bjarki segir að mikið tjón hefði getað orðið.
„Ef árásaraðili hefði komist inn með því að nýta sér þessa veikleika hefði hann getað stýrt vefnum, breytt upplýsingum á honum, reynt að gabba notendur, jafnvel komist lengra inn í kerfi þeirra sem áttu vefina.“
Þá sé hættuástandið ekki yfirstaðið. Næstu dagar og vikur fari í að fylgjast með því hverjir hafi uppfært og hverjir ekki.