Að minnsta kosti þrír fórust þegar þyrla NBC-sjónvarpsstöðvarinnar hrapaði á bílastæði í Los Angeles skammt frá vettvangi strætisvagnaslyss sem einnig kostaði þrjú mannslíf.
Slökkvilið borgarinnar segir minnst einn hafa týnt lífi á jörðu niðri þegar þyrlan hrapaði, skall á tveimur gámum milli tveggja verslana þannig að kviknaði í henni. NBC hefur staðfest að það sé þyrla einnar fréttastofu stöðvarinnar sem hrapaði.