Loftvarnarflautur hafi verið ræstar í kjölfar raðar öflugra sprenginga segir í umfjöllun Reuters. Rússar hafi skotið meðal annars sex langdrægum flugskeytum og 121 dróna. Herstjórn borgarinnar hafi tilkynnt íbúum að einhverjar skemmdir hafi orðið á byggingum og ein hafi staðið í ljósum logum í kjölfar árásanna.
Rússar hafa hert árásir á Úkraínu undanfarnar vikur og minnst sextíu hafi látist í árásum Rússa á Kænugarð og nágrenni í júlímánuði. Átján létust eftir umfangsmikla árás á Kænugarð í byrjun þessa mánaðar en Rússar sögðust hafa verið að ráðast á hernaðarverksmiðjur í hefndarskyni fyrir árásir á borgaralega innviði í Rússlandi.