Minningarguðsþjónustur um Harald Noregskonung voru haldnar í nær öllum dómkirkjum landsins í morgun.
Athöfn verður í Niðarósdómkirkju síðdegis. Konungsfjölskyldan mætti til guðsþjónustu í Asker-dómkirkju, sem er nálægt Skaugum, opinberu heimili krónprinsfjölskyldunnar. og hefur því iðulega verið notuð sem heimakirkja konungsfjölskyldunnar.
Öll konungsfjölskyldan var viðstödd athöfnina að undanskilinni Mette Marit drottningu, sem komst ekki af heilsufarsástæðum. Hún undirgekkst lungnaskiptaaðgerð fyrr á árinu og því óttast um smit. Almenningur var hvattur til að vera snemma á ferð til að tryggja sér sæti og langar raðir mynduðust við dómkirkjurnar.
Norska ríkisútvarpið sendi beint út frá dómkirkjunni í Osló þar sem forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre var viðstaddur auk fleiri ráðherra. Pål Kristian Balstad, dómprófastur, sagði við upphaf athafnarinnar að hún væri ólík öðrum því Haraldur konungur væri látinn.
Þjóðin hefði misst ástsælan konung og fjölskyldan elskaðan eiginmann, föður, tengdaföður og afa.
Sonja drottning var augljóslega djúpt snortin að lokinni athöfninni í Akser. Hún þakkaði prestunum kærlega að lokinni athöfn og faðmaði þau bæði að sér. Þau hjón áttu 58 ára brúðkaupsafmæli í gær.
Hákon konungur flutti minningarræðu um föður sinn í gærkvöld þar sem hann sagði fjölskylduna og þjóðina alla sakna hans. Hákon lauk ræðu sinni á að þakka Haraldi konungi fyrir allt sem hann stóð fyrir og allt sem hann gerði fyrir Noreg.