Hin 56 ára Ming Ting Mancel hefur verið ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition hótelinu þann 14. júní árið 2025. Eiginmaður hennar Emeric Mancel, 58 ára, er grunaður um samverknað en hann lést einnig þennan dag.
Vísir greindi fyrst frá. Marcel er frönsk en ættuð frá Nýju Kaledóníu og hafði verið í farbanni á Íslandi þangað til í dag. Fjölskyldan var búsett á Írlandi. Farbannið er framlengt á meðan málið er til meðferðar dómstóla.
Dóttirin Catherine Marcel var 29 ára og eru foreldrar hennar grunaðir um að hafa banað henni. Móðirin fannst sjálf með stunguáverka á bringu. Hún var vopnuð hnífi og sagði að eiginmaður sinn væri dauðvona. Þau hafi ekki viljað að dóttirin yrði ein eftir.