Milljóna bónusgreiðslur ofan á forstjóralaun
Forstjórar fyrirtækja sem skráð eru í íslensku kauphöllina fengu sumir milljóna króna bónusa ofan á laun sín. Samhengið á milli bónusgreiðslna og árangurs fyrirtækjanna er óljóst. Þannig fékk forstjóri Icelandair 9 milljóna króna bónus ofan á ríflega fimm milljóna króna mánaðarlaun þrátt fyrir mikið tap.
Ellefu íslenskir forstjórar í kauphöllinni fengu milljóna króna bónusgreiðslur ofan á laun sín á síðasta ári. Þetta kemur fram í úttekt Heimildarinnar á launum og kjörum forstjóranna. Þessar viðbótargreiðslur voru stór hluti tekna sumra þeirra.
Tekjur Ásgeirs Helga réðust til að mynda að verulegu leyti af árangurstengdum greiðslum en þegar kemur að bónusgreiðslum er hann í sérstöðu. Hann fékk 47 milljónir króna í árangurstengdar greiðslur frá Skel til viðbótar við 95 milljóna króna laun og 21 milljón í mótframlag í lífeyrissjóð. Þá fékk hann einnig um 9 milljóna króna greiðslu fyrir stjórnarformennsku í Kaldalóni, skráðu félagi þar sem Skel er stærsti fjárfestirinn.
Hagnaður Skeljar hefur verið töluverður en hann dróst saman á milli ára í fyrra um rúmlega 36 prósent, eða 2,5 milljarða króna. Árangurstengd greiðsla til Ásgeirs Helga jókst á sama tíma um 14,63 prósent, eða 6 milljónir króna.
Gögnin gefa ekki ástæðu til að ætla að …