Reykjavíkurborg hyggur á stórátak í að laga skemmdar gangstéttir víða um borgina.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu í gær við að laga illa farna gangstétt í Grafarvogi. Fréttastofa talaði við konu á tíræðisaldri sem slasaðist illa þar um helgina þegar hún féll úr hjólastól. Ítrekað hafði verið varað við því að gangstéttin væri slysagildra.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að stéttin hafi verið á framkvæmdaáætlun sumarsins.
„Þær stéttir sem eru undir eru um alla borg því að ástandi er mjög slæmt. En við fórum fram á að þessi tiltekna stétt yrði sett í algeran forgang og framkvæmdir hæfust strax. Því var vel tekið og okkar góða fólk fór af stað undir eins.“
Framundan sé hins vegar stórt viðhaldsátak í gangstéttum borgarinnar. Það muni taka kjörtímabilið að leysa úr því.
„Við viljum bregðast fyrr við. Við viljum ekki að það þurfi að verða slys á fólki til að við förum í framkvæmdir. Þannig að þetta verður nokkurra milljarða framkvæmd og við munum strax við næstu fjárfestingaáætlun gera ráð fyrir auknu fjármagni til að hefja þetta viðhaldsátak.“