Deilur um fyrirhugaða uppbyggingu 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum í Hafnarfirði halda áfram að magnast.Einar Geir Þorsteinsson, fulltrúi Miðflokksins í bæjarráði, gerir alvarlegar athugasemdir við samkomulag bæjarins við einkafélag um uppbygginguna og segir það vekja fleiri spurningar en það svari.Meirihluti bæjarráðs samþykkti samkomulagið með fjórum atkvæðum gegn einu á fundi sínum 17. september. Málið kemur nú til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar á þriðjudag.
Mikil ólga í Hafnarfirði vegna 260 íbúða: „Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar“