Stjórnendur Haga hafa ákveðið að lækka verð á hátt í þúsund vörum um tvö prósent til áramóta. Þetta eru vörur sem Bónus og Hagkaup hafa til sölu í verslunum sínum.
Þetta eru viðbrögð fyrirtækisins við hvatningu verkalýðsfélaga um að fyrirtæki landsins haldi aftur af verðhækkunum til að sporna gegn verðbólgu og liðka fyrir því að kjarasamningum verði ekki sagt upp.
Vörurnar sem lækka eru almenn hilluvara, frystivara, kælivara, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur sem Hagar flytja inn. Einkum eru þetta vörumerkin Euroshopper, Salling og Santa Maria.
Að sögn Haga lækkar verð á 15 til 20 prósentum þeirra vara sem eru í boði í verslunum Bónuss. Fyrirtækið heitir því að þær vörur sem lækkuðu í verði í dag hækki ekki aftur í verði fram að áramótum. Það segir að lækkanir á innkaupsverði geti þó orðið til þess að verð lækki meira.