Ekki er möguleiki á að mynda ríkisstjórn, segir Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Hún segir að Vinstriflokkurinn hafi tilkynnt sér að hann ætli að styðja fulltrúa Moderaterna í stöðu þingforseta.
Andersson greindi frá niðurstöðunni á blaðamannafundi. Hún sagðist hafa rætt við ýmsa flokka um stjórnarmyndun þá tíu daga sem liðnir eru síðan forseti þingsins fól henni að mynda ríkisstjórn.
Hún sagði að þar sem þing væri að koma saman ætti að kjósa nýjan þingforseta. Hún sagði eðlilegt að það embætti félli jafnaðarmönnum í skaut þar sem þeir væru stærsti flokkurinn á þingi.
Vinstriflokkurinn styður fulltrúa Moderaterna í kjöri á þingforseta. Andersson sagði því eðlilegt að flokkarnir sem sameinuðust um kjör á þingforseta reyndu fyrir sér við myndun ríkisstjórnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.