Strandgæsla Máritaníu bjargaði 250 úti fyrir ströndum höfuðborgarinnar Nouakchott í dag, þar af voru 61 kona og 17 börn um borð í bátunum.
Fólkið fór frá Banjul í Gambíu fyrir viku og ætlaði að reyna að komast yfir Atlantshafið til Kanaríeyja. Bátarnir voru illa útbúnir og flótta- og förufólkið var matarlaust og í vandræðum með bensín og leiðsögutæki um borð í bátunum.
Flestir um borð voru frá Senegal, Gambíu og Gíneu en einnig frá fleiri löndum í vestur Afríku. Margir eru að flýja fátækt og erfitt efnahagsástand í þessum löndum og sjá því ekki annan kost en að fara þessa leið með ólöglegum hætti.