Óstýrilátur farþegi olli skemmdum á innréttingu Icelandair-vélar í flugi frá Keflavík til Amsterdam í dag. Lögregla tók á móti farþeganum við lendingu og var hann handtekinn.
Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við fréttastofu. Hún segir að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögreglu vegna hegðunar farþegans.
Skemmdir urðu á innréttingu flugvélarinnar. Ásdís getur ekki veitt nánari upplýsingar um umfang tjónsins.
Málið er nú til skoðunar hjá yfirvöldum í Hollandi. Ásdís getur ekki staðfest þjóðerni farþegans. Ekki liggur fyrir hvort Icelandair leggi fram kæru vegna málsins.
Flugferðin heim varð tæplega klukkutíma á eftir áætlun frá Amsterdam. Flugvélin lenti þó aðeins um hálftíma síðar en áætlað var á Keflavíkurflugvelli.