Ristruflanir eru vandamál sem margir karlar eiga erfitt með að ræða og þegar þær gera vart við sig er freistandi að leita strax að skjótri lausn á borð við Viagra.Það eru hins vegar mistök að líta eingöngu á ristruflanir sem vandamál í svefnherberginu, að sögn Dr. Arthur Burnett, prófessors í þvagfæraskurðlækningum við hinn virta Johns Hopkins-háskóla.Ástæðan er sú að stinning byggir á góðu blóðflæði og ristruflanir geta því tengst sömu vandamálum í hjarta- og æðakerfinu og meðal annars háþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og reykingar.
Þúsundir karla leita til hans vegna ristruflana – Þetta vill hann að þeir geri áður en þeir grípa í Viagra