Alvarlegt atvik kom upp í nótt nálægt herstöð breska flughersins í suðvesturhluta Englands. Sprengjusérfræðingar voru kallaðir til og hafa fimm verið handteknir vegna gruns um undirbúning hryðjuverka og brot á lögum um sprengiefni. Donald Trump, Bandaríkjaforseti segir mennina hafa verið til rannsóknar í lengri tíma.
Þrjú „grunsamleg farartæki“
Breska lögreglan greindi frá því á blaðamannafundi í dag að ábending hefði borist rétt eftir miðnætti um þrjú grunsamleg farartæki sem stefndu í átt að RAF Fairford – herstöð breska flughersins í suðvesturhluta Englands.
Lögregla var með mikinn viðbúnað og voru íbúar áttatíu og fimm heimila í bænum Whelford, í nágrenni við herstöðina, fluttir á brott.
Stórt svæði var girt af og hryðjuverkadeild lögreglu og sprengjusérfræðingar hersins kallaðir til. Fimm menn hafa verið handteknir vegna málsins, grunaðir um brot á lögum um sprengiefni og undirbúning hryðjuverka.
Lögregla segir atvikið hafa verið afmarkað og að hún hafi náð tökum á aðstæðum. Rannsókn sé á frumstigi.
Bandaríski flugherinn með afnot af herstöðinni
Enn er óljóst hver stendur að baki atvikinu, en í breskum fjölmiðlum hefur verið leitt að því líkum að Íranar gætu átt hlut að máli.
Í byrjun mars veitti Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra, bandaríska flughernum leyfi til að nýta herstöðina í sérstökum og einangruðum varnaraðgerðum í stríðinu gegn Íran. Talsmaður bandaríska flughersins segir starfslið á herstöðinni á varðbergi.
„Við vinnum náið með kollegum okkar í Bretlandi og fylgjumst með stöðunni til að lágmarka skaða og tryggja öryggi starfsliðs Bandaríkjanna, fjölskyldna þeirra og nærsamfélagsins.“
„Við höfum náð þeim“
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi atvikið við fjölmiðla fyrir stundu.
„Við höfum rannsakað mennina. Þeir ætluðu sér að vinna mikil skemmdarverk á herstöð okkar. Samvinna með Bretunum tókst vel til,“ er haft eftir Trump á BBC.
„Það gæti hafa verið Scotland Yard, ég veit ekki. Við höfum unnið með fjölda þeirra. Við höfum verið að fylgjast með þeim í lengri tíma og við höfum náð þeim. Það var frábært, vinnan með Bretunum.“
BBC birtir mynd frá meintri handtöku
Á vef BBC má sjá mynd sem er sögð sýna þegar fimmmenningarnir voru handteknir um 350 metrum frá herstöðinni.
Sá sem sendi myndina segir að hún hafi verið tekin í gærkvöld og henni deilt á hóp heimamanna á samskiptamiðlinum WhatsApp.
Sérhæfð deild innan breska ríkisútvarpsins, BBC Verify, sem einbeitir sér að staðreyndaathugunum, rannsóknarblaðamennsku og baráttu gegn upplýsingaóreiðu, hefur staðsett myndina landfræðilega og segir hana virðast ósvikna.