Það að drekka mjög heitt kaffi eða te gæti þrefaldað líkur á krabbameini í vélinda. Það dregur hins vegar strax úr líkunum ef fólk leyfir drykkjunum að kólna niður á þægilegt hitastig áður en það drekkur þá. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í vísindatímaritinu International Journal of Cancer nýverið.
Neysla heitra drykkja var tengd við krabbamein í þekjuvef vélindans. Talið er að hár hiti drykkja skaði frumurnar sem þekja það.
Meiri neysla heitra drykkja, frekar en minni, er einnig tengd við auknar líkur á krabbameini í þekjuvef vélindans. Líkurnar jukust um 71 prósent hjá fólki sem drakk sex eða fleiri heita drykki á dag.
Rannsóknin byggir á greiningu á tæplega milljón manna í Bretlandi. Hún náði yfir 14 ára tímabil og er sú stærsta sem hefur verið gerð á tengslum neyslu heitra drykkja og þessarar tegundar krabbameina.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru svipaðar og niðurstöður rannsókna sem hafa þegar verið gerðar í Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og Miðausturlöndum. Þar hafa fundist tengsl á milli neyslu drykkja yfir 70 gráðum og aukinnar hættu á krabbameini í vélinda.