Borgarstjóri Bangkok, Chadchart Sittipunt, hefur sagt að úrkoma haldi áfram að minnka en hann varaði borgarbúa þó við því að vatnsborð myndi hækka enn meira á sumum svæðum í borginni þar sem vatn héldi áfram að streyma inn frá nærliggjandi svæðum. Er þetta meðal þess sem erlendir miðlar á borð við fréttaveituna AP greina frá.
Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í flóðunum síðustu tíu daga en stöðug og mikil úrkoma svo dögum skiptir hefur valdið víðtækum flóðum og alvarlegum truflunum í Bangkok, sem hefur haft áhrif á umferð og fyrirtæki, en uppsöfnuð úrkoma hefur farið yfir þrjátíu sentímetra á mörgum svæðum.
Ert þú í Tælandi eða þekkir þú einhvern sem er á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Veðurstofa Taílands sagði að enn væri búist við miðlungsmikilli til mikilli rigningu á sunnudag í nokkrum landshlutum en búist væri við að aðstæður myndu batna á mánudag, er fram kemur í frétt AP.
Þá hafi um þrjú þúsund manns gist í neyðarskýlum víða um borgina síðustu nætur en á nokkrum láglendum svæðum sem séu enn á kafi hafi miklar skemmdir orðið vegna flóðsins á heimilum fólks.
Ríflega hálf milljón manns í tuttugu og sex héruðum Tælands hefur orðið fyrir áhrifum af flóðum, sérstaklega í mið- og austurhluta landsins, samkvæmt upplýsingum frá almannavarna- og viðbragðsdeildinni.
Ert þú í Tælandi eða þekkir þú einhvern sem er á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.