Sérfræðingur Stafrænnar velferðar fagnar frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra um aðgang barna að samfélagsmiðlum. Foreldrar séu oft undir miklum þrýstingi að hleypa börnum sínum inn á samfélagsmiðla en lagasetning gæti breytt félagslegum viðmiðum.
„Þessi lög eru svona eins og útivistartíminn í rauninni og eru á ábyrgð foreldra. Það verða engin viðurlög og það er engin refsing eða eftirlit með þessu. En þetta gefur foreldrum svona sterk samfélagsleg viðmið,“ segir Anna Laufey Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Stafrænni velferð.
Forvarnarmódelið það mikilvægasta í frumvarpinu
Frumvarp Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra var kynnt í samráðsgátt fyrir helgi og felur í sér að foreldrar sjái til þess að börn yngri en 15 ára hafi ekki sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum. Aldurstakmarkið miðar við fæðingarár barns.
„Það mikilvægasta í þessu frumvarpi og er í raun eina leiðin til að þetta virki er að eins og forvarnarmódelið hér á árum áður eru fræðsla og forvarnir lykilatriði hérna,“ segir Anna Laufey.
„Og eina leiðin til að þetta frumvarp beri nokkurn árangur er að nýta það sem við lærðum í forvarnarmódelinu og leggja mikla áherslu á fræðslu og ég er mjög glöð að sjá áhersluna sem er lögð þar í þessu frumvarpi.“
Anna Laufey telur að betra hefði verið að miða við 16 ára aldur og haldast því í hendur við lög um útivistartímhaldaunnskólagöngu. Þá segir hún skilgreiningu samfélagsmiðla í frumvarpinu ekki nægilega skýra.