Fjörutíu ungmenni á aldrinum 14 til 25 ára komu saman á Hótel Borgarnesi um helgina, þar sem Ungmennaþing Vesturlands fór fram. Aðgengi að frístunda- og íþróttastarfi, samgöngum og heilbrigðisþjónustu var þeim ofarlega í huga.
Þinginu lauk með því að ungmennin lögðu fram ályktanir sem sendar verða bæði á Alþingi og sveitarstjórnir á Vesturlandi. Þær byggja á umræðum og vinnu ungmennanna á þinginu.
Meðal tillagnanna er að starfrækt verði ungmennahús eða sambærileg aðstaða fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára í öllum sveitarfélögum á svæðinu. Þau vilja líka fjölga ferðum almenningssamgangna milli sveitarfélaga, ekki síst á Snæfellsnesi, þar sem strætó gengur ekki um helgar.
Í ályktuninni segir: „Tryggja þarf að strætó gangi einnig um helgar og fram eftir kvöldi, svo ungt fólk komist á milli sveitarfélaga vegna náms, vinnu, íþrótta og félagsstarfs.“
Þá kallaði þingið eftir því að ungmennaráðum sveitarfélaganna yrði tryggður skýr farvegur til að hafa áhrif á ákvarðanir sveitarstjórna. Þau skora á sveitarstjórnir að auka fjármagn til sameiginlegra viðburða og menningarlífs fyrir ungt fólk og bæta viðhald opinbers húsnæðis og útivistarsvæða.
„Okkur vantar fleiri sálfræðinga“
„Það sem hefur brunnið á okkur bara mest um það að við eigum að fá að hafa álit og frekar að spyrja okkur áður en það er framkvæmt. Við erum með sjö ákveðna punkta sem við höfum verið að ræða, eins og heilsu og af hverju það er svona löng bið hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Okkur vantar fleiri sálfræðinga,“ segir Vigdís Júlía Viðarsdóttir, 14 ára frá Hellissandi sem situr í ungmennaráði Snæfellsbæjar.
Þá sé betra aðgengi að samgöngum mikilvægt. Hún segir núverandi fyrirkomulag og leiðarkerfi Strætó óhentugt og leiðirnar lengri en þörf þykir, vegna ýmissa krókaleiða sem lengi ferðina.
Vigdís Júlía segir ráðamenn sem hafi verið til svars á fundinum hafa svarað spurningum þeirra skýrt og vel. Sumum spurningum sé þó enn ósvarað.
„Það er til dæmis með heilsu. Þau eru búin að vera að reyna að ýta á það, en þau vita það ekki,“ segir hún.