Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í samtali við blaðamann Vísis en hann er lögmaður Elvars Orra Palash Arnarssonar í málinu sem er á dagskrá næsta þriðjudag, þann 29. september.
Lögmaðurinn Jóhannes Már Sigurðarson, sem er lögmaður Kingu Malgorzata Reimus, staðfestir einnig að málið varði hljóðbútinn en taldi ekki þörf á að tjá sig frekar um málið að svo stöddu.
Lagið sem um ræðir var eitt vinsælasta lag síðasta sumars en það hefst á hljóðbút þar sem heyra má tvær stelpur rífast. Myndbandið sem hljóðið er úr hefur verið í dreifingu um árabil á samfélagsmiðlum og var því þekkt af mörgum áður en Elvar klippti bútinn úr því inn í sumarsmellinn „Miklu betri einn“.
Stelpurnar heyrast segja eftirfarandi:
„Heldurðu að ég viti ekki hvernig þetta er, eða?
Ég veit líka hvernig þetta er,
Ég hélt framhjá Elvari
Og ég sagði strax honum, strax!“
Þegar þessi frétt er skrifuð hefur lagið verið spilað hátt í 1,5 milljón sinnum á Spotify sem gerir það farsælasta lag Elvars til þessa. Hann hefur síðan unnið að tónlist með stjörnum á borð við Birni, Loga Pedro, Aron Can, Þórmóð og Luigi.