Hafnarfjarðarbær breytti deiliskipulagi sínu í maí til þess að koma 30.000 fermetra húsnæði Tækniskólans fyrir í Flensborgarhöfn.
Fasteignaeigendur í nágrenninu kærðu breytinguna til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Nú hefur nefndin komist að niðurstöðu og hafnar hún kröfu kærenda um að ógilda breytt skipulag.
Deiliskipulagið stendur því óhaggað þrátt fyrir að ljóst sé að Tækniskólinn rísi ekki í Hafnarfirði úr þessu, eins og fjallað hefur verið um í fréttum RÚV. Úrskurðurinn byggist á að nýtt deiliskipulag samræmist aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar og samráð hafi verið haft við fasteignaeigendur.
Óljóst hvað verður
Til stóð að rífa ríflega 6500 fermetra af húsnæði til þess að koma Tækniskólanum fyrir.
„Við lásum bara um það í blöðunum að það var búið að teikna yfir húsið okkar og reyndar fjölmargra eigenda í þessu húsi. Nú þegar það þróaðist áfram þá var komin niðurrifsheimild á húsið. Það sem kemur kannski á óvart er allt ferlið í stjórnsýslunni - hvað er lítið samráð,“ segir Ólafur Steinarsson, einn fasteignaeigenda og stjórnarmaður Salteyrar ehf. í viðtali fyrr í þessum mánuði.
Hann sagðist þá óttast að eignir hans og annarra yrðu teknar eignarnámi. Úrskurðurinn felur ekki í sér eignarnám eða ákvörðun um niðurrif.
Í úrskurðinum eru gerðar athugasemdir við að ekki hafi verið fjallað nægilega ítarlega um aðra valkosti fyrir nýbyggingu Tækniskólans í Hafnarfirði.
Ólafur segir að að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort Salteyri ehf. bregðist við úrskurði nefndarinnar.
Orri Björnsson, formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, segir í samtali við fréttastofu að ekkert væri ákveðið um hvað myndi rísa á lóðinni fyrst að Tækniskólinn byggir ekki þar. Margir möguleikar væru í stöðunni en ekkert frágengið í þeim efnum.