Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir tíma til kominn að vinda ofan af verðtryggingunni sem gegnsýri samfélagið allt, ýti undir verðbólgu og tryggi hagsmuni þeirra sem eiga frekar en þeirra sem skulda. Þetta kom fram í Sprengisandi í morgun.Daði bendir á að það sé eitt að afnema verðtryggingu á lánum. Annað sé að afnema verðtrygginguna sem fyrirbæri.
Kominn tími til að vinda ofan af hringavitleysunni - „Verðtryggingin gegnsýrir allt samfélagið“