Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagt af sér. Afsögnin kemur sjö mánuðum áður en fimm ára kjörtímabili hans átti að ljúka, en hann hefur gegnt embætti forseta frá 2017.
Áður hafði hann gegnt embætti forsætisráðherra frá 2014.
Samkvæmt stjórnarskrá Serbíu má forseti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil. Afsögnin er talin liður í áætlun Vučić um að taka þátt í komandi þingkosningum sem boðaðar hafa verið 25. október, fyrir hönd Serbneska framfaraflokksins (SNS).
Vinni flokkurinn kosningarnar er talið að Vučić komi til með að sækjast eftir embætti forsætisráðherra.
„Þetta er síðasta kvöldið mitt í þessari byggingu“
Hundruð stuðningsmanna Vučić mættu honum til hvatningar þegar hann tilkynnti um afsögnina fyrir utan forsetaskrifstofuna í miðborg Belgrad fyrir stundu.
„Þetta er síðasta kvöldið mitt í þessari byggingu. Ég hef þjónað ykkur heilshugar og föðurlandi mínu Serbíu. Og ég er stoltur af því sem við höfum áorkað saman,“ sagði Vučić.
„Og í lok desember munum við fara í fyrstu umferð forsetakosninga.“
Ana Branbic, forsætisráðherra Serbíu, tekur við sem starfandi forseti landsins þar til nýr forseti hefur verið kosinn.