Fangelsismálayfirvöld í Hollandi ætla að láta kvenkyns fanga fá kynlífsleikföng. Ástæðan er faraldur sýkinga svo sem sveppasýkinga eftir að fangarnir hafa notað heimagerð leikföng.Hollenski miðillinn NOS greinir frá þessu.Af lýðheilsuástæðum hafa hollensk fangelsismálayfirvöld ákveðið að veita kvenföngum kynlífsleikföng, svo sem gervilimi. Það er eftir að heilbrigðisstarfsfólk upplýsti um faraldur sveppasýkinga í hollenskum fangelsum.
Hollensk fangelsi veita kvenföngum kynlífsleikföng – Fengu sýkingar af heimagerðum leikföngum